Blogg

1 + 1 = 3

Mynd úr færslunni „1 + 1 = 3“

Ég hef oft sagt í gríni að við séum tvö í Mynstru – ég og gervigreindin.

Hún hjálpar mér með margt og magnar mín afköst. En nú er komið að því að Mynstra stækki – við verðum þrjú.

Mynstra er í dag ráðgjafarfyrirtæki sem býður upp á fræðslu og ráðgjöf um hagnýtingu gervigreindar. Við byggjum líka hugbúnaðarlausnir fyrir og með viðskiptavinum, þar sem gervigreind er annaðhvort kjarni virkninnar eða öflugt hjálpartæki til að melta, túlka og bæta framsetningu gagna.

Þar sem ég kem úr byggingariðnaði hefur Mynstra unnið mikið í þeim geira. Ég trúi því að samhengi skipti öllu máli í þróun góðra lausna, en nýtt fólk opnar nýjar dyr.

Mynstra er líka að þróa sínar eigin vörur – sú fyrsta verður kynnt bráðlega.

Stundum eru dagarnir langir. Það er engin skrifstofa (ennþá) og ekki einu sinni kaffivél, en við finnum út úr því 😅

Þetta er ramminn og starfið mótast í samstarfi við rétta manneskju.

Ef þú elskar að láta forvitnina leiða þig áfram, takast á við nýja hluti og skapa eitthvað nýtt – þá langar mig að heyra frá þér.

Sendu mér línu hér á LinkedIn 🚀

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn