Mynstra

Persónuvernd

Drög. Textinn verður yfirfarinn áður en vefurinn fer formlega í loftið.

Mynstra ráðgjöf ehf. (kt. 491224-0960) ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem berast í gegnum þennan vef. Hér kemur fram hvaða upplýsingum er safnað, í hvaða tilgangi og hver réttindi þín eru.

Fyrirspurnir

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum vefinn fáum við nafn, netfang og skilaboð, og vinnustað og síma ef þú gefur það upp. Ef þú hakar við að samtalið fylgi með fáum við líka samtalið við agentinn.

Upplýsingarnar eru notaðar til að svara fyrirspurninni og eiga samskipti um það sem hún snýst um. Fyrirspurnin berst sem tölvupóstur í pósthólf Mynstru hjá Microsoft og er geymd þar eins lengi og þörf er á vegna samskiptanna.

Pósturinn er sendur í gegnum póstþjónustuna Postmark, sem geymir upplýsingar um sendan póst í takmarkaðan tíma.

Spjallið

Spurningar sem þú skrifar í spjallið eru sendar til Anthropic, sem rekur gervigreindarlíkanið Claude, svo hægt sé að búa til svar. Mynstra vistar ekki samtölin. Anthropic notar ekki gögn sem berast í gegnum forritaskil fyrirtækisins til að þjálfa líkön og geymir þau í takmarkaðan tíma samkvæmt skilmálum sínum.

Ekki skrifa viðkvæmar persónuupplýsingar, kennitölur eða lykilorð í spjallið.

Flutningur út fyrir EES

Anthropic, Postmark og Google eru bandarísk fyrirtæki, svo upplýsingar úr spjalli, fyrirspurnum og vefmælingum geta verið unnar utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Póstlisti

Ef þú skráir þig á póstlistann fáum við netfangið þitt og tímann sem þú skráðir þig. Það er eingöngu notað til að senda þér stöku sinnum póst frá Mynstru um nýjar greinar og námskeið. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með því að svara pósti eða skrifa á mynstra@mynstra.is.

Vafrakökur og mælingar

Ef þú leyfir notum við Google Analytics til að sjá hvernig vefurinn er notaður, t.d. hvaða síður eru skoðaðar. Google Analytics setur vafrakökur og Google vinnur úr upplýsingunum. Ef þú hafnar eru engar mælingar settar af stað. Þú getur breytt valinu hvenær sem er: breyta vali um vefmælingar.

Vefurinn geymir líka í vafranum þínum valið um mælingar og samtalið við agentinn á meðan flipinn er opinn.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt og andmæla vinnslu. Sendu beiðni á mynstra@mynstra.is.

Ef þú telur að vinnslan brjóti gegn persónuverndarlögum getur þú kvartað til Persónuverndar.

Ábyrgðaraðili

Mynstra ráðgjöf ehf.
Kennitala 491224-0960
mynstra@mynstra.is