Blogg

Ætla að setja inn nokkrar off beat AI fréttir hérna í sumar

Mynd úr færslunni „Ætla að setja inn nokkrar off beat AI fréttir hérna í sumar“

Nýlega þróaði Meta (Facebook) AI-módelið TRIBE v2 sem er í grunninn stafrænn tvíburi af heilanum. Það spáir fyrir um hvernig heilinn þinn bregst við mynd, hljóði eða texta, þjálfað á heilaskönnunum frá yfir 700 manns. Allt open source líka.

Tilgangurinn er göfugur, að hjálpa taugavísindafólki að rannsaka heilann án þess að stinga fólki í skanna í hvert skipti.

En það er erfitt að hugsa ekki lengra. Meta lifir jú á því að halda okkur límdum við skjáinn, og módel sem getur spáð fyrir um viðbrögð heilans við áreiti er ansi öflugt verkfæri til að hanna enn meira ávanabindandi efni.

Þetta er gott dæmi um hvernig gervigreind má nota til bæði góðs og ills, og á sama tíma mjög cool.

Greinin: A foundation model of vision, audition and language for in-silico neuroscience. Verkefnasíðan: TRIBE v2 hjá Meta.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn