Blogg

Albanía skipar gervigreind sem ráðherra!

Mynd úr færslunni „Albanía skipar gervigreind sem ráðherra!“

Albanía hefur tekið áhugavert skref í nýtingu tækninnar og skipað gervigreind, sem gengur undir heitinu Diella, sem ráðherra.

Hlutverk Diellu verður að hafa umsjón með opinberum innkaupum og útboðum, með það að markmiði að auka gagnsæi og draga úr spillingu. Þess utan mun hún hafa umboð til þess að ráða fólk til starfa, fara yfir tilboð og taka ákvarðanir um niðurstöðu útboða.

Í hugann kemur Project Vend, sem var tilraun sem Anthropic (Claude) gerði fyrr á árinu, þar sem gervigreind var falið að reka skrifstofusjoppuna.

Þar sýndi tilraunin að gervigreind getur sinnt ýmsum verkefnum vel. Hún fann birgja, svaraði viðskiptavinum og sinnti daglegu utanumhaldi – en hún lenti líka í ýmsum vandræðum.

Claudius hafði óútskýranlegan áhuga á því að selja tungsten teninga, en minni áhuga á því að halda búðinni arðbærri, þar sem hún bauð starfsmönnum upp á rausnarlega afslætti og lét stundum vörur fara út fyrir lítið eða ekkert.

Í báðum tilfellum er gervigreind sett í hlutverk sem krefst sjálfstæðrar ákvarðanatöku með raunverulegar afleiðingar. Í tilraun Anthropic var áhættan lítil og bundin við skrifstofusjoppu, en í tilviki Albaníu er hún gríðarlega mikilvæg, þar sem opinberir peningar, gagnsæi og traust almennings á stjórnsýslunni er undir.

Mun Diella ná að standa sig betur en Claudius í sjoppunni?

Heimild: Politico um Diellu.

Mynd úr færslunni „Albanía skipar gervigreind sem ráðherra!“

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn