Blogg

Borðtölvan fær comeback!

Mynd úr færslunni „Borðtölvan fær comeback!“

Það hefur komið fram að ég er með gervigreindar umboðsmann sem heitir Magnús.

Hann keyrir allan sólarhringinn á Mac Mini heima hjá mér á OpenClaw. Hann les tölvupóstinn minn, skipuleggur verkefni, skrifar kóða og getur meira að segja hringt fyrir mig.

Síðustu vikur hefur Anthropic kynnt hvern fítusinn á fætur öðrum sem færir Claude nær því að vera OpenClaw. Nú er t.d. hægt að fjarstýra Claude á tölvunni úr símanum. Hann getur notað öppin sem þú notar á tölvunni og hann getur framkvæmt verkefni á fyrirfram ákveðnum tímum.

En þetta gengur ekki ef tölvan sem Claude er á er ofan í tösku. Hann þarf að geta verið við á öllum stundum þegar “eigandi” hans þarf á honum að halda.

Ég held að Borðtölvan eigi fyrir höndum endurkomu.

Síðasti áratugur fór í að færa allt yfir í skýið og símana. En þegar gervigreindaraðstoðarmenn þurfa að vinna raunveruleg verkefni, stjórna skrám, keyra forrit og vinna með gögn — þá dugar síminn einfaldlega ekki. Þeir þurfa aðgang að tólunum þínum. Þeir þurfa borðtölvu.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn