
Í vikunni sem leið var okkur í EES löndunum veittur aðgangur að nýjum eiginleikum í minni ChatGPT, rúmum mánuði á eftir USA.
Núna hefur ChatGPT vitund um önnur samtöl á ríkari hátt en áður. Maður getur raunar spurt út í hvaða spjall sem er. En ChatGPT veit líka í hverju þú ert að vinna hverju sinni.
Í dag var ég að undirbúa námskeið fyrir stjórnendadag hjá Reykjanesbæ og ChatGPT kom mér skemmtilega á óvart. ChatGPT vísaði nefnilega til Reykjanesbæjar án þess að ég hefði sett það í promptið. Mér leið svolítið eins og ChatGPT hefði lesið hugsanir mínar. Raunin var sú að ég hafði átt nokkur spjöll á undan um undirbúning námskeiðsins og Chat fékk vitneskjuna þannig.
Látum gæði svarsins liggja á milli hluta. Við þurfum að ítra það aðeins á námskeiðinu.