Blogg

ChatGPT verður að markaðstorgi

Mynd úr færslunni „ChatGPT verður að markaðstorgi“

Í sumar fórum við fjölskyldan í lestarferðalag um alpana, frá München í gegnum Austurríki, Liechtenstein, Swiss og yfir til Ítalíu þar sem ferðin endaði.

Stórkostleg ferð sem var skipulögð í náinni samvinnu við ChatGPT. Gervigreindin hjálpaði okkur að velja leiðir í gegnum Alpana, borgir og bæi til að stoppa í, hótel og áhugaverða staði á leiðinni. Auk þess að áætla kostnað við ferðina.

Á ferðalaginu sjálfu var Chat líka frábær fararstjóri sem vissi alltaf hvar næsti farangursskápur var á lestarstöðinni, eða hvar næsta barnvæna veitingastað var að finna.

Það var talsverð vinna að undirbúa ferðina, jafnvel þó að ChatGPT hafi hjálpað mikið. Sérstaklega að panta flug og hótel. Eitthvað sem krafðist einbeitingar, að tryggja að dagsetningar væru í samræmi við ferðaplanið.

Á næstu mánuðum mun ChatGPT taka stökk sem mun auðvelda skipulagningu svona ferðalags til muna.

Í vikunni kynnti OpenAI nefnilega að brátt verður hægt að kaupa vörur í sjálfu spjallinu í ChatGPT. Í dag var svo kynnt að fyrirtæki muni geta tengt sín öpp við ChatGPT. Þannig að fyrirtæki eins og Booking.com (eða Icelandair) munu geta tengt sitt vöruframboð beint inn í spjallið.

Þetta verður í senn áskorun fyrir sum fyrirtæki (eins og kannski ferðaskrifstofur), en líka tækifæri fyrir önnur að koma vörum sínum nær kúnnanum.

[Myndin er frá Innsbruck sem var í sérstöku uppáhaldi hjá okkur fjölskyldunni]

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn