Blogg

Claude hefur eyra fyrir músík

Mynd úr færslunni „Claude hefur eyra fyrir músík“

Gervigreind hefur nýst mér mjög vel til þess að finna nýja músík út frá dæmum sem ég gef.

Ég er stórnotandi gervigreindar í starfi mínu. Eitt af því sem maður áttar sig fljótt á, er að mismunandi gervigreindarmódel hafa mismunandi styrkleika og að benchmarkarnir segja ekki alla söguna. Tilfinningin segir mér að Claude sé að skila bestu niðurstöðunum þegar kemur að músík.

Ég hef verið svolítið í klassískum minimalisma undanfarið. Á myndinni má sjá yfirlit sem Claude bjó til fyrir mig, sem sýnir á skýran hátt hvernig Philip Glass tengist öðrum tónskáldum, hverjir höfðu áhrif á hann og hverjir hafa orðið fyrir áhrifum frá honum. Svo má auðvitað alltaf kafa dýpra.

Þetta hjálpar mér að skilja betur tónlistina og kynnast nýjum verkum sem eiga samleið með klassískum minimalisma.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn