Blogg

EFLA kaupir þriðjungshlut í Mynstru

Stórar fréttir – EFLA kaupir þriðjungshlut í Mynstru!

Undanfarið hafa opnast gríðarleg tækifæri til að nýta gervigreind í hönnun og undirbúningi framkvæmda. Ég held að verkfræðigeirinn muni ganga í gegnum sams konar byltingu og hugbúnaðargeirinn hefur gengið í gegnum síðustu ár.

Við hjá Mynstru höfum síðustu tvö ár unnið af kappi að því að finna og hagnýta þessi tækifæri, meðal annars í góðu samstarfi við EFLU.

Við þökkum EFLU traustið og hlökkum mikið til aukins samstarfs á næstu árum. Það verður spennandi að uppgötva saman hvernig gervigreind getur breytt starfi ráðgjafans.

Frétt Viðskiptablaðsins: Efla kaupir þriðjungshlut í Mynstru