Blogg

Ég held að hönnun bygginga muni breytast gríðarlega á næstu árum

Skjáskot úr myndbandinu „Ég held að hönnun bygginga muni breytast gríðarlega á næstu árum“

Við höfum lengi horft á hverja byggingu sem einstakt verkefni og vissulega eru þær ólíkar. En þegar maður horfir undir yfirborðið sér maður að langflestar þeirra eru samansettar úr sömu kerfunum með svipuðum forsendum.

Undanfarna daga hef ég verið að smíða lítið tilraunaverkefni í sumarfríinu hér í Sviss. Markmiðið er að kanna hversu langt hægt er að ganga í sjálfvirkri byggingahönnun.

Í appinu er hægt að:
• hanna fjölbýlishús, skóla eða skrifstofubyggingar
• breyta lögun byggingarinnar og láta íbúðir endurraðast sjálfkrafa,
• skilgreina blöndu af íbúðastærðum,
• búa sjálfkrafa til útlitsteikningar, grunnmyndir og snið,
• innrétta rýmin með húsgögnum, eldhús og baðherbergi
• hanna raflagnir, loftræsingu, hita- og neysluvatn sjálfvirkt,
• reikna magnskrár, nýtingarhlutfall, dagsbirtu og orku,

Það er meira að segja hægt að tengja kerfið við Claude og láta gervigreind hjálpa til við að búa til þarfagreiningu fyrir verkefið og svo framkvæma teikningu þess.

Þetta er allt svolítið gróft á þessu stigi.

Á næstu árum eigum við eftir að færa okkur frá því að teikna byggingar yfir í að skilgreina reglur, skorður og markmið – og láta hugbúnaðinn vinna úr þeim.

Ég mun deila meira af þessu verkefni á næstu vikum. Það verður spennandi að sjá hvert þetta leiðir.

Myndbandið er í færslunni á LinkedIn

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn