Blogg

Ég náði næstum því að halda fríið út án þess að forrita!

Mynd úr færslunni „Ég náði næstum því að halda fríið út án þess að forrita!“

Ég sat á sundlaugarbakkanum og var að leggja Spider Solitaire í símanum (ég veit, líf mitt er spennandi), þegar skyndilega fóru að koma hljóðauglýsingar úr appinu sem trufluðu hljóðbókina sem ég er að hlusta á (Bók 7 í The Expanse).

Mér reyndist ómögulegt að finna Spider Solitaire á App Store án auglýsinga, svo að ég vibe codaði mitt eigið vefapp á sundlaugarbakkanum úr símanum á nokkrum klukkutímum.

Þetta er það sem fjölmörg SaaS fyrirtæki munu standa frammi fyrir á næstu mánuðum.

Ef varan þeirra er einföld og auðveldlega eftiröpuð munu sumir viðskiptavinir velja að búa til sínar eigin sérsniðnu lausnir sjálfir. Fyrst minni og millistór fyrirtæki, en síðar eftir því sem gervigreindinni fer fram, munu stærri og stærri fyrirtæki fara þessa leið.

Appið er á spider.mynstra.is. Köllum þetta beta-útgáfu. Á iOS má vista síðuna sem app með því að opna hlekkinn í Safari og velja Add to home screen.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn