Blogg

Ég vibe-hannaði hús

Skjáskot úr myndbandinu „Ég vibe-hannaði hús“

Ekki bara mynd af húsi, heldur heilt BIM módel í Blender þar sem agentar tóku að sér hlutverk arkitekts, lagnahönnuðar, loftræsihönnuðar, raflagnahönnuðar, burðarvirkjahönnuðar, BIM stjóra og hönnunarstjóra.

Ég bað þá um að hugsa eins og fagfólk:
→ Hvar þarf vatn og frárennsli?
→ Hvaða rými þurfa loftræsingu?
→ Hvernig felum við stonna án þess að lækka lofthæð of mikið?
→ Hvar mega lagnir fara í gegnum burðarvirki?
→ Hvernig á rafkerfið að liggja í veggjum og loftum?

Þetta varð alls ekki fullkomið. Agentarnir gerðu fullt af mistökum og gleymdu mjög fljótt forsendum sem þeir höfðu sjálfir gefið sér.

Þetta varð að mjög iteratívu ferli - mjög svipað því að forrita með aðstoð gervigreindar.

Það kæmi mér mjög á óvart ef fólk verður enn að hand-teikna hluti í forritum eins og Revit eftir 3-5 ár.

Myndbandið er í færslunni á LinkedIn

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn