
Í gær fór í loftið herferð Samgöngustofu og Aur sem snýst um bílbelti, eða nánar tiltekið, hvað gerist þegar fólk notar þau ekki.
Klárlega með skemmtilegri verkefnum sem ég hef tekið þátt í.
Hins vegar ekki jafn skemmtilegt að notkun bílbelta hefur farið minnkandi, sérstaklega meðal ungs fólks og að nú sé aftur þörf á því að minna á notkun bílbelta.
Mitt framlag til verkefnisins var gervigreindarmaskína sem klessir andlitinu á þér á rúðu - oft með spaugilegum niðurstöðum.
Prófaðu á spenntur.is - og ekki gleyma að spenna beltin!
Takk fyrir samstarfið!
Einar Ben, Anton Darri, Jakob Helgi