
Nýlega hafa notendur ChatGPT bent á að í nýju módelunum, o3 og o4-mini komi æ oftar fram ósýnileg vatnsmerki í texta. Þessi vatnsmerki eru sérstakir ósýnilegir Unicode-stafir sem þó er hægt að sjá með því að skoða textann á ákveðinn hátt.
OpenAI hefur sagt þetta vera eðlilega aukaverkun af því að þjálfa stór tungumálalíkön, en hefur ekki staðfest þetta sem formlega vatnsmerkingu. Engu síður gætu aðrir nýtt þetta sem aðferð til þess að greina texta sem skrifaður hefur verið með gervigreind.
Á árdögum ChatGPT elskaði gervigreindin að nota orðið 'delve', sem varð fljótt kennimerki texta rituðum af gervigreind. Upp úr 2022 varð sprenging á notkun orðsins í fræðiritum. Það er þekkt að gervigreindarritaður texti hefur hingað til oft haft ákveðna áferð sem þjálfað auga greinir auðveldlega.
Þessi uppgötvun vekur upp spurningar um hvernig við ætlum að nálgast auðkenningu AI-framleidds efnis til lengri tíma.
Skiptir máli hvort texti er ritaður af gervigreind ef hann er yfirfarinn af manneskju?
Ps. þessi texti er spekkaður með ósýnilegum unicode-bilum (U+202F)