Blogg

Fáðu gervigreindina með þér í lið í jólamatseldinni!

Glæra úr færslunni „Fáðu gervigreindina með þér í lið í jólamatseldinni!“

Nú er aðfangadagur rétt handan við hornið. Jólunum fylgir mikil verkefna- og aðfangastjórnun. Jólagjafir, jólamatur, samræming viðburða og dagatala - í bland við að oft fylgir aukið álag í vinnunni vegna verkefna sem þarf að klára áður en allir fara í frí. Svo má ekki gleyma að njóta heldur.

Gervigreindin getur verið okkur innan handar í þessum verkefnum. Hún getur hjálpað okkur að fá hugmyndir að jólagjöfum, að finna besta verðið á netinu, við að setja saman jólamatseðilinn og skipuleggja innkaupin.

Matseldin á aðfangadag er á mínum snærum. Þetta eru oft margir réttir sem þurfa að verða til á sama tíma. Eldhúsið á það til að verða nokkuð kaótískt, hlutir gleymast og stundum vefst það fyrir mér að tími í ofninum er á bundinni leið.

Hér eru nokkur dæmi um hjálpargögn sem Claude vann fyrir mig upp úr nokkrum uppskriftum.

Glærurnar í heild eru í færslunni á LinkedIn

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn