
Í dag hélt ég fimmtugasta fyrirlestur/námskeið Mynstru um gervigreind á Stracta Hótel á Hellu. Erindið var fyrir Félag Byggingarfulltrúa og fjallaði um tækifæri og takmarkanir gervigreindar með tilliti til verkefna byggingarfulltrúa.
Tækifæri til notkunar gervigreindar í starfi byggingarfulltrúa eru mörg, sem dæmi:
- Aðstoð við yfirferð á hönnunargögnum, t.d. byggingarlýsingar, greinargerða hönnuða
- Aðstoð við yfirferð á samningum, t.d. lóðaleigusamninga og annarra
- Aðstoð við yfirferð á einfaldari atriðum úr skoðunarlistum HMS á teikningum
- Ritun svara við fyrirspurnum frá íbúum/umsækjendum byggingarleyfa
Endanleg ábyrgð er þó alltaf á herðum embættisins. Það er ekki hægt að skella skuldinni á ChatGPT ef í harðbakkann slær.