
Þá er Mortal Kosning kannski fyrir þig 🫵
Í Mortal Kosning leggja fylkingarnar málefnin til hliðar og setja hnefana upp!
Hjá Mynstru látum við forvitnina stundum leiða okkur á skrítna staði. Í þetta skiptið endaði hún fyrir framan Alþingishúsið, þar sem tíu þjóðþekktir einstaklingar gera upp ESB-málið með aðferðum sem hafa hingað til ekki sést í Silfrinu.
Hver einasti bardagi telur. Í leiknum er atkvæðagreiðsla í gangi. Hver sigur skráist sem atkvæði fyrir JÁ eða NEI.
Þjóðaratkvæðagreiðslan er sem sagt þegar hafin og fer fram með hringspörkum og vinstri krók.
Leikurinn varð til um helgina með gervigreindarverkfærum. 3D-módel, hreyfingar, raddir og Austurvöllur spruttu fram. Möguleikarnir eru orðnir ansi margir fyrir þau sem nenna að fikta.
Að því sögðu mælum við eindregið með því að fylkingarnar láti duga að beita ofbeldi inni í leiknum. 🕊️
Taktu þátt á mortalkosning.up.railway.app.

