Blogg

Fræðslufundur um gervigreind í byggingariðnaði hjá Iðunni

Mynd úr færslunni „Fræðslufundur um gervigreind í byggingariðnaði hjá Iðunni“

Núna á þriðjudag, þann 4. febrúar kl 8.30 verðum við Iðan fræðslusetur með fræðslufund um Gervigreind í byggingariðnaði. Mér skilst að skráning hafi farið mjög vel af stað og ég hlakka til að láta gamminn geysa!

Áherslan verður á að sýna dæmi um hvernig fólk í byggingariðnaði getur sjálft nýtt sér gervigreind eins og ChatGPT í sínu starfi. Auk þess að sýna dæmi um aðra tækni sem er aðgengileg í dag eða rétt handan við hornið 🤖.

Fundurinn verður haldinn í Vatnagörðum 20, en einnig verður hægt að fylgjast með honum í streymi. Skráning fer fram hjá Iðunni.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn