Blogg

Fyrir 10–12 árum byrjaði ég að hanna og selja ljósakrónur

Skjáskot úr myndbandinu „Fyrir 10–12 árum byrjaði ég að hanna og selja ljósakrónur“

Mér fannst skemmtilegt að hanna og búa til prótótýpurnar, en það var mjög tímafrekt að setja þær saman. Þegar ég var búinn að selja um 15 stykki, hætti ég að nenna því. Þetta var bara of mikið vesen og sjálf salan og samsetningin var ekki þar sem ástríðan lá.

Ég rifja upp, við og við, þessi gömlu hönnunarverkefni og það leiðir stundum af sér prótótýpu að nýju ljósi.

Nú ákvað ég að grúska aðeins í samsetningunni sjálfri - og fór að velta fyrir mér origami. Væri hægt að hanna ljósið þannig að maður bryti það einfaldlega saman með nokkrum handtökum, í stað þess að vera 2-3 klukkutíma að setja eitt ljós saman.

Sú pæling leiddi mig að fræðigrein frá NASA um nýjar aðferðir til að brjóta saman sólarpanela og opna þá aftur.

Nokkrum tímum síðar var ég kominn með hugmynd að ljósi sem notar origami hugmyndina við samsetningu þess, byggða á aðferð úr NASA-greininni.

Bilið á milli þess að finna áhugaverða þekkingu og geta hagnýtt hana í eigin verkefnum er orðið svo stutt. Þetta finnst mér eitt það magnaðasta við að vinna með gervigreind.

Þetta er geggjaður tími til að taka upp gömul verkefni og sjá hvað maður getur gert með gervigreindina sér til halds og trausts.

Maður fær svolítið löngun til að opna öll gömlu verkefnin aftur.

Myndbandið er í færslunni á LinkedIn

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn