
Ég sit í kvöld og undirbý námskeið fyrir morgundaginn. Það er óvenju mikið af glærum sem þarf að uppfæra eftir GPT 5 uppfærsluna, en námskeiðið tekur mið af ChatGPT.
Venjulega eru glærurnar á íslensku, en að þessu sinni verða þær á ensku og ég er að vippa þeim yfir á ensku. Copilot í Powerpoint gat ekki þýtt þær fyrir mig 🙄.
Mér leiddist að klippa og klístra á milli ChatGPT svo ég ákvað að spyrja gervigreindina hvort við gætum ekki búið til einfalt tól til að hjálpa til með þetta.
Niðurstaðan varð lítið Electron app sem þýðir textann með API kalli á LLM. Búið til á sennilega 30 mínútum.
Þetta er svo magnað 🤩