Blogg

Getur þú komið frumvarpi í gegnum Alþingi?

Mynd úr færslunni „Getur þú komið frumvarpi í gegnum Alþingi?“

Á 17. júní bjuggum við Magnús til nýjan tölvuleik um Alþingi, nánast alfarið í gegnum Telegram í símanum.

Leikurinn heitir Frumvarpið.

Þetta er card-based leikur, ekki ósvipaður Magic: The Gathering eða Pokémon, þar sem þú spilar út alþingismönnum, málefnum, nefndum og atburðum.

Til að vinna þarftu að koma frumvarpi í gegnum Alþingi - og það gerir maður með því að safna 32 atkvæðum.

Í stokknum eru 187 spil. Öll grafík var unnin með gervigreind, með Magnús sem millilið, og sagan segir að þar leynist einnig nokkrir Legendary-class fyrrverandi þingmenn.

Þetta var tilraun til að sjá hversu langt hægt er að komast með sjálfvirknivæðingu á efnissköpun og leikjahönnun.

Það er margt sem mætti bæta — en tokens eru ekki ókeypis.

Prófaðu á frumvarpid.mynstra.is.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn