
Það er óhætt að segja að viðtökur GPT5 hafi verið blendnar ef maður skoðar viðbrögðin á internetinu.
GPT5 virkar á annan hátt en fyrri líkön og kemur alfarið í stað gömlu líkananna (4o, o3, o4-mini osfrv). GPT5 er í raun mörg líkön og ákveður sjálft hvenær fyrirspurn notandans verðskuldar dýpri hugsun. Þannig beinir GPT5 fyrirspurnum notandans sjálft áfram á viðeigandi líkan.
Þessi uppfærsla er sennilega ekki gerð fyrir ofurnotendur. Líklegt er að upplifun langflestra notenda verði betri en áður, þó að ofurnotendur upplifi að þeir missi stjórn yfir hvernig líkanið virkar. Raunin var sú að mjög fáir notendur notuðu t.d. reasoning módel (o3, o4-mini)(sjá tweet frá Sam Altman).
Þeir notendur sem voru vanir að skipta á milli t.d. 4o og o3 líkananna geta fengið svipaða upplifun og áður með því að hafa ChatGPT stillt á GPT5-Thinking og ef fyrirspurnin er einföld að smella þá á Get a quick answer.
Það er enginn vafi á að nýju líkönin eru öflugri en þau gömlu og ef fólk fær svar frá réttu líkani þá ættu svörin að vera góð.
