Blogg

Grok 3 - Nýtt módel frá X.AI

Mynd úr færslunni „Grok 3 - Nýtt módel frá X.AI“

Í nótt kynnti Elon Musk nýtt gervigreindarlíkan sem virðist skáka öllum helstu gervigreindarmódelum á markaðnum.

Þetta er fyrsta líkanið sem nær fyrsta sæti í öllum flokkum á LMarena, sem ber saman getu gervigreindarlíkananna út frá ýmsum mælikvörðum. En þó það skori hæst í öllum flokkum, þá er það bara aðeins betra en líkön samkeppnisaðilanna.

Reyndar var fólk á X fljótt að benda á að o3 frá OpenAI hafi vantað í samanburðinn á reasoning hæfileikum í kynningarefni X.

Engu að síður þá hefur X.ai tekist að ná samkeppnisaðilunum á ógnarhraða.

Það er áhugavert hve nálægt líkönin eru nálægt hvoru öðru í hæfileikum. Það er - eins og er - ekkert líkan sem er langbest.

Mynd úr færslunni „Grok 3 - Nýtt módel frá X.AI“

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn