
Ástralska fyrirtækið Cortical Labs lét fyrr á árinu um 200.000 lifandi heilasellur spila leikinn Doom.
Frumurnar eru ræktaðar úr stofnfrumum á sílikonflögu. Það sem gerist í leiknum er þýtt yfir í rafboð sem frumurnar geta skynjað, og taugavirkni þeirra túlkuð sem skipanir til að stýra Doom. Tauganetið lærir og aðlagast og getur spilað leikinn.
Cortical Labs vill nota tæknina til þess að rannsaka hvernig taugafrumur læra, prófa lyf við taugasjúkdómum og mögulega til að þróa tölvukerfi sem þurfa mikið minni orku og gögn en hefðbundin GG.
Fyrirtækið býður nú þegar upp á cloud-aðgang þar sem þú getur keyrt kóða á lifandi taugafrumum. 😬
Robocop kemur óneitanlega upp í hugann og á einhverjum tímapunkti hljóta að vakna spurningar um hvar mörkin liggja, á milli hugbúnaðar, lífveru og vélbúnaðar.
Það er svo margt annað í gangi en stór máltæknilíkön (LLM).