
Það sem ég dýrka við gervigreindina er að manni eru eiginlega engin mörk sett um hvað maður getur gert í samvinnu við hana. Það er miklu frekar maður sjálfur sem er takmörkunin - og það býður upp á mikil tækifæri til lærdóms.
Í kvöld var ég að undirbúa fyrirlestur sem ég verð með á Degi verkfræðinnar sem Verkfræðingafélag Íslands stendur fyrir núna á föstudag. Mig langaði að hafa smá "case" sem dæmi um hvernig hægt er að nýta gervigreind í raunhæfum verkefnum.
Ég hugsaði með mér: "Skyldi vera auðvelt að búa til parametrískan hermi fyrir hitaþróun í steypuklumpi sem er að harðna".
Það kemur mér ennþá á óvart hversu langt maður kemst með smá grúski og hjálp frá gervigreindinni.
Þegar steypa harðnar verður efnahvarf sem losar varma. Við ákveðnar aðstæður getur hitamyndunin orðið svo mikil að hún hefur áhrif á endanlegan styrk steypunnar og getur jafnvel kallað á sérstaka kælingu.
Líkanið mitt er auðvitað bara „work-in-progress“, en ég sé fyrir mér að með smá meiri tíma og fikti gæti orðið til nákvæmt líkan sem sýnir hvernig steypan hagar sér í mismunandi aðstæðum.
Sennilega væri samt gott að vita eitthvað um þetta líka 😅
En það er einmitt kjarninn í erindinu mínu sem ber titilinn:
„Gervigreind magnar mátt verkfræðingsins“
Hlakka til að sjá sem flest á föstudaginn!