Blogg

Huge! Verkgreinir rýnir nú teikningar sjálfkrafa!

Mynd úr færslunni „Huge! Verkgreinir rýnir nú teikningar sjálfkrafa!“

Nýjasta viðbót Verkgreinis er hugsuð til að flýta fyrir yfirferð aðaluppdrátta og séruppdrátta hjá byggingarfulltrúa og gera hönnuðum kleift að fá foryfirferð á teikningum sínum.

Verkgreinir notar sömu gátlista og byggingarfulltrúar við yfirferð á teikningum. Tólið getur líka gagnast hönnuðum sem vilja gera skimun á sínum eigin teikningum, áður en þær eru lagðar inn, til þess að auka líkurnar á snurðulausri yfirferð.

Þeir sem hafa komið að undirbúningi framkvæmda þekkja að yfirferð teikninga er á bundinni línu verkefnisins. Þetta er tími þar sem allir eru spenntir að byrja að byggja og fjármagnskostnaður byrjaður að tikka. Það er því alltaf ergilegt þegar verkefni missir af fyrirtöku á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa og þarf að bíða fram að næsta fundi.

Kerfið kemur ekki í stað yfirferðar byggingarfulltrúa, heldur er það hugsað til þess að létta undir og flýta fyrir. Ég er áhugasamur um að fá 2-3 sveitarfélög með í prófanir á kerfinu.

Hefur þú áhuga á að prófa yfirferð teikninga með Verkgreini?

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn