
Síðustu helgar höfum við hjá Mynstru verið að grúska í tilraunaverkefni þar sem gervigreind hefur greint yfir 1.500 opinberar tillögur almennings um hagræðingu í ríkisrekstri. Tillögurnar voru fengnar af samráðsgáttinni úr átaki ríkisstjórnarinnar, Verum hagsýn í rekstri ríkisins.
💡 Sjáið niðurstöðurnar á verumhagsyn.mynstra.is.
Með aðstoð gervigreindar tókst að draga fram ólíkar víddir úr tillögunum, meta gæði þeirra og setja þær fram á skýrari og aðgengilegri hátt en áður.
Greiningin leiddi í ljós margar áhugaverðar tillögur:
• Stafræn umbreyting
- Áhersla á stafrænar lausnir sem bæta þjónustu og auka skilvirkni
- Nýting gervigreindar til að einfalda ferla og flýta afgreiðslu
• Innviðir og búsetumál
- Uppbygging samgöngukerfa og almenningssamgangna
- Umbætur í skipulags- og húsnæðismálum
• Orkumál og sjálfbærni
- Aukin áhersla á endurnýjanlega orkugjafa
- Tækifæri í rafbílavæðingu og orkuskiptum
Verkefnið sýnir skýrt fram á tækifærin sem felast í notkun gervigreindar við greiningu á stórum gagnasöfnum. Þetta er aðeins byrjunin - við hjá Mynstra erum spennt að ræða við ykkur um hvernig svipuð tækni gæti nýst í ykkar rekstri.
Skoðið greininguna á vefnum og hafið samband ef þið viljið ræða möguleikana.

