Blogg

Hversu erfitt er að bæta gervigreind í íslensku?

Mynd úr færslunni „Hversu erfitt er að bæta gervigreind í íslensku?“

Umræðan um SovereignAI hefur verið mjög lifandi hérna á LinkedIn síðustu vikur og áhugavert að fylgjast með henni.

Með SovereignAI er átt við gervigreindarlíkan sem íslensk stjórnvöld ráða yfir - eins konar fullveldislíkan sem önnur lönd eða fyrirtæki gætu ekki takmarkað aðgang okkar að. Það mætti keyra það innan lögsögu Íslands og nota til þess að vinna með viðkvæm gögn.

Svona líkan þyrfti auðvitað að hafa frábæra íslenskukunnáttu, en þyrfti líka að lágmarki að vera nothæft agent líkan sem getur kallað á tól sem hjálpa því að svara fyrirspurnum. Svo væri gott að það hefði víðtæka þekkingu á íslensku þjóðfélagi og menningu.

Í stórum dráttum eru tvær leiðir færar við gerð SovereignAI:

  • Þjálfun líkans frá grunni.
  • Fínþjálfun open source líkans.

Gróflega einfaldað hleypur kostnaður við þjálfun líkans frá grunni á milljörðum en fínþjálfun líkans sennilega á tugum eða hundruðum milljóna.

Líftími bestu gervigreindarlíkana er í dag minni en 6 mánuðir, sennilega nær 3 mánuðum. Þá eru komin fram betri eða ódýrari líkön í rekstri.

Stjórnvöld vilja fá evrópskan aðila til þess að þjálfa líkan frá grunni á íslenskum gögnum. Gallinn við að fá evrópskt fyrirtæki í verkefnið er að það eru engin evrópsk fyrirtæki í fararbroddi í þróun gervigreindar. Öflugasta evrópska módelið er í 77. sæti á LM Arena í dag.

Hér eru nokkrar spurningar sem mér sem leikmanni þætti gott að fá svör við.

Er hægt að gera fínþjálfað líkan nógu gott í íslensku?

Hver verður hönnunarlíftími líkansins? Mun einhver hafa þolinmæði fyrir notkun "neðanmáls gervigreindar" sem er mörgum kynslóðum á eftir nýjustu líkönunum?

Hvað ætlum við að gera þegar SovereignAI líkanið er úrelt? Ætlum við þá að búa til annað líkan frá grunni? Ætlum við að þjálfa nýtt SovereignAI á hverju ári?

Á meðan við höfum frábær gervigreindarlíkön eins og Gemini sem hefur frábær tök á íslensku, þurfum við yfirhöfuð SovereignAI líkan?

Væri hægt að gera samning um "air-gapped" gemini líkan sem væri hægt að keyra innan lögsögu Íslands í einhverju af þeim fínu gagnaverum sem við höfum hér? (svipað og varnarmálaráðuneyti Bretlands hefur gert).

Hvers vegna þarf fyrirtækið sem þjálfar líkanið að vera evrópskt?

Hvað með uppbyggingu þekkingar hér á Íslandi í þróun gervigreindar?

Ég hef ekki svörin. En umræðan kveikti áhuga á að kynna mér málið betur. Meira um það síðar.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn