
Það er eiginlega orðið að áhugamáli hjá mér að búa til lítil grínöpp og leiki með gervigreindinni og deila hér á LinkedIn í skiptum fyrir læk og athugasemdir.
Gallinn er kannski að fólk fari að halda að Mynstra búi eingöngu til tölvuleiki. En þar sem maður getur ekki alltaf sagt frá þeim verkefnum sem maður er að vinna að, þá er freistandi að segja frekar frá þessum litlu tilraunum.
Nýjasta slíka appið varð til í gær.
Það notar landupplýsingagögn frá veitufyrirtækjum og sveitarfélögum til að svara einni mikilvægri spurningu:
Hvert fer kúkurinn þegar maður sturtar niður?
Þetta byrjaði sem smá sprell, en varð fljótt áhugaverð æfing í að vinna með raunveruleg lagnagögn sem eru oft ófullkomin, misnákvæm og ekki alltaf tengd saman eins og maður myndi vona.
Þannig að þetta varð allt í einu verkefni í gagnahreinsun, topólógíu, fráveitukerfum, kortum og smá húmor.
Ég hafði ekki gert ráð fyrir að skrifa þessa spurningu á LinkedIn, en hér erum við:
Hvert fer kúkurinn þinn?
Sturtaðu niður á kukur.mynstra.is.