Blogg

Í síðustu viku spurði ég: Hvert fer kúkurinn þinn?

Mynd úr færslunni „Í síðustu viku spurði ég: Hvert fer kúkurinn þinn?“

Sá póstur varð vinsælasti póstur sem ég hef skrifað á rúmum áratug á LinkedIn. 13.000 impressions, 175 engagements og útvarpsviðtal. Það er áhugavert í sjálfu sér. Internetið verðlaunar skrítna hluti.

En algóritminn hefur talað og þetta kallar á follow-up.

Uppfærslan:

💩 3D Augmented Reality Mode 💩
Smelltu á 3D takkann. Beindu símanum að götunni og sjáðu skólplagnirnar undir fótum þér. Svo er sturta-niður takki sem sendir einn stóran niður næstu lögn.

💩Rauntímarakning💩
Fylgstu með kúknum ferðast í lögnunum í rauntíma. Allir aðrir notendur sjá hann á kortinu, með nafni, á siglingu á 1.3 m/s út í sjó.

💩Leitaðu eftir heimilisfangi💩
Staðfangaskrá HMS hefur verið tengd við fráveitukerfið. Sláðu inn heimilisfang og sjáðu leiðina sem kúkurinn fer.

Þannig að nú spyr ég: Hvar er kúkurinn þinn?

Sturtaðu niður á kukur.mynstra.is.

Mynd úr færslunni „Í síðustu viku spurði ég: Hvert fer kúkurinn þinn?“

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn