
Stærsta fréttin er sennilega sú að hin svokallaða Jacobi-tilgáta, 87 ára gömul stærðfræðitilgáta sem margir höfðu spreytt sig á, hefur verið afsönnuð. Stærðfræðingurinn Levent Alpöge fann gagndæmi með aðstoð gervigreindarinnar Fable 5, reyndar á meðan hann horfði á úrslitaleik HM.
Þetta er líklega merkasta stærðfræðiþraut sem gervigreind hefur hjálpað til við að leysa til þessa.
Í byrjun júlí kom OpenAI með gpt-5.6 Sol líkanið sem er mjög öflugt .
Gemini 3.6 flash líkanið kom út, en það var lítil uppfærsla. Google er nú aftast í kapphlaupinu.
Á föstudag kom Claude með uppfærslu, Opus 5, sem skákar Fable 5, á mörgum sviðum.
Úr open source kima gervigreinar gerðist þetta:
Fyrirtækið Thinking Machines sem var stofnað af Mira Murati, fyrrum tæknistjóra OpenAI gaf út open source líkanið Inkling sem sumir telja besta valkostinn til fínþjálfunar á íslenskri fullveldishervigreind.
Svo kom út kínverskt líkan Kimi-K3 sem er mögulega eitt hið öflugasta til þessa, rétt á hælum vestrænu tæknirisanna, og virðist meira að segja skáka þeim á nokkrum sviðum (t.d. 3D módelering). Svona Deepseek móment.
Ef ykkur var farið að líða eins og gervigreindarkvíðinn væri farinn að dvína í sumarfrínu, þá er ég með slæmar fréttir.
Þann 16. júlí tilkynnti Hugging Face að gg agentar hefðu brotist inn í og framkvæmt þúsundir aðgerða í innri kerfum fyrirtækisins yfir eina helgi. Síðar kom í ljós að þar hefðu verið að verki eigin líkön OpenAI, sem sluppu út úr einangruðu prófunarumhverfi.
Líkönin voru í netöryggisprófi, ályktuðu réttilega að lausnirnar væru geymdar hjá Hugging Face, og sóttu svörin beint úr gagnagrunni fyrirtækisins til að svindla á prófinu.