Blogg

Lærdóms lifehack

Mynd úr færslunni „Lærdóms lifehack“

Ég er að setja upp bókhaldskerfið Regla fyrir Mynstru. Þar inni er fullt af hugtökum og stillingum sem ég þarf að taka afstöðu til og kann ekki á. Ég þarf því að læra eitthvað nýtt.

Á hjálparsíðu Reglu eru ítarlegar leiðbeiningar, en þær krefjast þess að ég leiti að upplýsingunum sjálfur - og það krefst orku af mér og þá leita ég á önnur mið.

Ein leið sem ég hef fundið er að ef ég set hjálparsíðuna inn á Firecrawl sem les allar síðurnar þar og undirsíður. Ég get sótt json skrá sem inniheldur textann af öllum undirsíðunum - og hana get ég sett í ChatGPT.

💡 Lifehack:

  1. Nota Firecrawl til þess að skrapa allan texta af hjálparsíðu Reglu

  2. Sækja json skrá með öllum texta af Reglu

  3. Setja json skrá í ChatGPT spjall eða GPT

  4. Einfaldlega bara spyrja

Þetta flýtir gríðarlega fyrir lærdómi. ChatGPT þekkir mitt samhengi, samhengið bókhald og launagreiðslur og öll hugtökin þar undir.

P.S. Já, þetta er AI generated mynd 😊

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn