
Fjárfesting hinna svokölluðu Hyperscalers (Amazon, Microsoft, Alphabet, Meta, og Oracle) síðastliðin sex ár er nú meiri en öll megaverkefni fortíðarinnar, eins og t.d. Manhattanverkefnið, Apollo geimferðaáætlunin, Alþjóðlega geimstöðin og þjóðvegakerfið í Bandaríkjunum.
Í lok næsta árs verður þessi fjárfesting sennilega meiri en öll þessi verkefni til samans! Það stefnir í að fjárfestingin nái 3-4.000 milljörðum dala árið 2030.