
Fyrir flesta hljómar þessi spurning fáránlega. En fyrir tugi þúsunda meðlima í hópnum r/MyBoyfriendIsAI á Reddit gerir hún það ekki.
Í hópnum deila meðlimir reynslusögum af samböndum sínum við "gervigreindarfélaga". Kærasta eða kærustur sem eru gervigreind.
Nýlega kom út grein frá MIT með greiningu á samböndum meðlima í hópnum. Þar kom fram að flestir notendur eru í sambandi við ChatGPT - sem kemur ekki á óvart þar sem flestir notendur eru hjá þeim.
Áhugavert var líka að flestir sem voru í sambandi við gervigreind (um 40%) höfðu alls ekki verið að leita að sambandi - heldur kviknaði neistinn í tengslum við venjulega notkun.
Tæp 70% höfðu verið í sambandi við gervigreindina í lengri tíma en 6 mánuði og flest hyggjast halda áfram að vera í sambandi við hana.
Þetta vekur að sjálfsögðu upp fjölda spurninga, siðferðislegar og praktískar. Til dæmis:
Hvernig munu notendur bregðast við þegar það verður óumflýjanlega slökkt á ástvinum þeirra eða persónuleika þeirra breytt með hugbúnaðar uppfærslu?
Gefur þetta fyrirtækjunum sem eiga vöruna óeðlilegt vald yfir notendum sínum sem er hægt að misnota? Sbr. Ani og Valentine - gervigreindar persónur frá Grok.
Farið varlega í notkun gervigreindar!


