Blogg

Mynstra er nú að verða eins og hálfs árs og þetta hefur verið rússíbani

Mynd úr færslunni „Mynstra er nú að verða eins og hálfs árs og þetta hefur verið rússíbani“

Þjónustuframboð Mynstru þróaðist frá því að vera bókstaflega allt sem ég kann (survival mode) yfir í að vera aðallega þróun gervigreindarlausna fyrir iðnað, auk fræðslu um möguleika og hagnýtingu gervigreindar.

Þrátt fyrir að það sé nánast fullt starf að fylgjast með og reyna eftir bestu getu að tileinka sér nýjustu möguleika gervigreindar. Þá hefur Mynstru tekist - í samvinnu við góða viðskiptavini að búa til nokkrar mjög öflugar lausnir sem eru að nýtast mjög vel.

Ein slík er VerkAI sem er þróuð fyrir Ístak með þeim Thomas Skov Jensen og Ingibjörg Birna Kjartansdóttir (og fleirum).

𝐕𝐞𝐫𝐤𝐀𝐈
Verk AI er spjall-gervigreinarlausn sem gerir starfsfólki Ístaks kleift að spjalla við og greina gögnin sem notuð eru á verkstað með einföldum og öruggum hætti.

Verklýsingar og samningsgögn í framkvæmdum telja yfirleitt á hundruðum blaðsíðna og við notum ýmis trix sem gera okkur kleift að fá mun nákvæmari svör en almennari lausnir á borð við ChatGPT eða Copilot bjóða upp á. Þá talar VerkAI líka annmarkalausa íslensku.

Það er erfitt að þróa gervigreindarlausnir því state-of-the-art er skotmark sem hreyfist mjög hratt, en ég er ekki frá því að það hafi tekist, að minnsta kosti hingað til.

Ég þakka frábæru fólki hjá Ístaki fyrir gott samstarf!

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn