
Fjalar Sigurdarson hefur gengið til liðs við Mynstru.
Fjalar á að baki fjölbreyttan feril og kemur inn með sterka blöndu af markaðs- og samskiptaþekkingu, skapandi hugsun og mikinn drifkraft til að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að nýta og innleiða gervigreind á praktískan og ábyrgan hátt.
Þetta er stórt skref fyrir Mynstru og mig persónulega. Það er bæði í senn ógnvekjandi og spennandi að fá liðsauka við uppbyggingu á Mynstru - sem hefur hingað til verið mitt eigið hugarfóstur.
Nú er bara að láta hendur standa fram úr ermum og fara með Mynstru á næsta stig.
Ps. Hér að neðan er sýn Gemini á samstarf okkar Fjalars og í leiðinni brýning að mæta meira í ræktina.