
Við settum okkur í spor fasteignasala og skoðuðum hvernig þeir geta nýtt sér gervigreind til að spara tíma og bæta framsetningu.
Eitt af því sem vakti mesta athygli var hversu ótrúlega auðvelt er nú orðið að búa til myndbönd úr tveimur ljósmyndum. Tól eins og Gemini eða Google Flow gera þetta að leik. Fullkomið fyrir þá sem vilja sýna eignir á lifandi hátt, án mikillar fyrirhafnar.
Það er stundum sagt að mynd segi meira en þúsund orð – en stutt myndband hlýtur að vera á við að minnsta kosti tvö þúsund.