Blogg

Nokkuð sem veitir mér nokkra ánægju er að búa til öpp sem koma í stað áskrifta sem Mynstra er með

Mynd úr færslunni „Nokkuð sem veitir mér nokkra ánægju er að búa til öpp sem koma í stað áskrifta sem Mynstra er með“

Þrjú slík hafa orðið til á þessu ári en það eru:

  • Tíma- og verkbókhaldskerfi (Mynstra Timesheets )
  • Activity logger app (Mynstra Time - kom í stað MemTime)
  • MynstraWhisper (Voice to text - kemur í stað Superwhisper)

Þetta áhugamál er reyndar engan veginn arðbært, að minnsta kosti á meðan við erum ekki fleiri hjá Mynstru. En það góða er að afurðin er nákvæmlega eins og hentar mér best. Ég þarf ekki að aðlaga mig að kerfi sem var hannað til að ná utan um þarfir þúsunda mismunandi notenda. Þau innihalda bara það sem þarf og þau vaxa með Mynstru.

Ef ég sé tækifæri í einhverju sem myndi létta mér lífið þá bæti ég því bara við. Tímaskráningarappið sem var nokkuð hrátt í upphafi ársins, býr í dag til drög að reikningum sjálfkrafa í Payday og samstillir skrá yfir viðskiptamenn þar inni og hengir við tímaskýrslu.

Ég hef engin áform um að selja þessi öpp. En það er magnað hvað maður getur sjálfur búið til á nokkrum kvöldstundum með dyggri aðstoð gervigreindarinnar.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn