Blogg

Notaðu AI til að skipuleggja sumarfríið

Mynd úr færslunni „Notaðu AI til að skipuleggja sumarfríið“

Í fyrra notaði ég ChatGPT til þess að skipuleggja sumarfríið. Úr varð frábært sumarfrí með fjölskyldunni: Lestarferðalag um alpana, frá Þýskalandi, í gegnum Austurríki, Liechtenstein, Sviss og með endastöð í Baveno við Lago Maggiore á Ítalíu.

Ári síðar eru gervigreindartólin orðin enn betri í því að skipuleggja sumarfríið. Þau eru orðin mikið öflugri í að leita að rauntímaupplýsingum á internetinu og setja jafnvel saman glærukynningar með planinu. Þau keðja saman áfangastaði, finna afþreyingu, hótel og samgönguleiðir sem henta þér, aðlaga planið að fjárhag, eftirvæntingum og öðrum óskum.

Á ferðalaginu sjálfu eru tólin ChatGPT, Gemini og Claude alltaf klár með svör þegar þig vantar stað til að geyma töskurnar þínar, góðan ítalskan veitingastað eða afþreyingu fyrir krakkana innan seilingar - hvar sem þú ert.

Hefur þú prófað að láta gervigreindina skipuleggja sumarfríið?

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn