Blogg

Nóvember var rosalegur mánuður í gervigreind!

Mynd úr færslunni „Nóvember var rosalegur mánuður í gervigreind!“

Risarnir kepptust um að toppa hvern annan með nýjum gervigreindarlíkönum. En það var Google sem kom þessari skriðu af stað með útgáfu Gemini 3 Pro - sem má segja að hafi sigrað þessa lotu á flestum sviðum.

OpenAI var fyrst af stað með GPT 5.1, sennilega til þess að vera á undan Google. Það er erfitt að koma út með módel sem er lélegra en besta módelið á markaðnum. Að því sögðu er GPT 5.1 mjög öflugt og skánaði aðeins í íslensku m.v. GPT5.

Grok kom einnig með módel sem skorar vel á prófum, en hef ekki prófað það mikið sjálfur.

Þá gaf Google út Gemini 3 Pro sem er núna langbesta módelið á íslensku og öflugt í nánast alla vinnslu. Nokkrum dögum síðar kom svo út Nano Banana Pro, State of the art gervigreindarlíkan í myndvinnslu. Það býður upp á mun meiri stjórn yfir niðurstöðunum en áður hefur verið hægt. Það liggur við að þetta líkan geti líka komið í stað Powerpoint, því það er hægt að búa til mjög flóknar glærur og flæðirit með því.

Að lokum kom Claude Opus 4.5 frá Anthropic. Að mínu mati besta gervigreindarlíkanið í forritun núna - að minnsta kosti þegar það er notað með Claude Code. En líka mjög snjallt líkan í ýmis skrifstofuverkefni, gott í íslensku, og mjög gaman að ræða við það seint á kvöldin um heimspekileg álitamál þess að vera gervigreind.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn