Blogg

Núna eru sex mánuðir liðnir frá því að ég stofnaði Mynstru

Skjáskot úr myndbandinu „Núna eru sex mánuðir liðnir frá því að ég stofnaði Mynstru“

Ég viðurkenni fúslega að ég var skíthræddur um að um þetta leyti væri ég að byrja að leita mér að vinnu. Planið var einfalt: sparnaðurinn dygði fram í júní. Ef ekkert væri farið að gerast í júní þá væri þetta búið.

En það fór ekki alveg þannig.

Raunin er sú að það hefur verið nóg að gera. Á þessu fyrsta hálfa ári hef ég:

  • Haldið yfir 30 námskeið og fyrirlestra.
  • Unnið með 28 fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum.
  • Þróað og afhent 4 sérsmíðaðar hugbúnaðarlausnir sem hafa þegar sparað hundruði vinnustunda – allt frá gervigreindartólum til sjálfvirkra mælaborða.

Þegar ég lagði af stað var planið svolítið óljóst. Ég bjó til langan lista yfir allt sem ég kann og gæti mögulega selt einhverjum. Mest af öllu langaði mig þó að vinna með gervigreindina. Mig langaði að hjálpa fólki að nota hana og, umfram allt, að forrita og þróa nýjar lausnir.

Það frábæra er að eftirspurnin hefur verið langmest eftir sérfræðiþekkingu á sviði gervigreindar, sjálfvirknivæðingar og sérsmíði hugbúnaðar.

Stefnan hefur því þróast nokkuð. Mynstra er að orðin að gervigreindarmiðuðu ráðgjafarfyrirtæki sem býður upp á fræðslu og sérhæfðar lausnir.

Á næstu 6 mánuðum er planið að byggja ofan á þennan grunn og að fyrstu hugbúnaðarvörur Mynstru líti dagsins ljós. Það væri líka gaman ef það fjölgaði í hópnum.

Takk fyrir samfylgdina fram að þessu og gleðilegt sumar! 🌞

Myndbandið er í færslunni á LinkedIn

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn