
ChatGPT 5.1 er lent hjá mörgum notendum, þar með talið hjá Mynstru. OpenAI segir módelið betra í að fylgja leiðbeiningum, leysa einföld vandamál hraðar og hugsa lengur um erfiðari fyrirspurnir sem getur leitt af sér betri niðurstöður. Þá sé það hlýrra í samskiptum en útgáfa 5.
Það er alltaf gaman þegar ný gervigreindarmódel lenda, því þau öðlast yfirleitt einhverja nýja eiginleika og opna á ný use case. Það verður því spennandi að prófa sjálfur og sjá hvað aðrir notendur fá GPT-5.1 til að leysa fyrir sig.
Hliðarverkun af útgáfu nýrra módela er að þau ýta við samkeppnisaðilunum sem svara oft í sömu mynt. Orðrómar hafa verið á kreiki um að stutt sé í útgáfu Gemini 3.0 Pro og að þar verði á ferðinni stórt stökk. 🚀
