
Google sem undanfarið hefur verið eftirbátur samkeppnisaðilanna í þróun gervigreindar er heldur betur komin aftur í kapphlaupið.
Líkanið Gemini-2.5-Pro-Exp-03-25 hefur stimplað sig rækilega inn í hjörtu notenda á LMArena sem gefa gervigreindarlíkönum einkunn. Þar trónir þetta líkan yfir öðrum. Það er hrein unun að nota þetta líkan sem brillerar á íslensku og gefur hágæða svör.
Að sama skapi tekur líkanið endalaust* við af gögnum, og styður það um 1 milljón tokens (sem samsvarar um það bil orðafjölda allra sjö Harry Potter bókanna).
Mæli með að fólk prófi þetta líkan sem má nálgast frítt á Gemini.