
Í gær gaf OpenAI út nýtt módel (GPT 5.2) sem notendur geta nú nýtt sér. Þetta módel er nokkuð stórt stökk frá fyrra módeli (GPT 5.1) sem þó var gefið út fyrir rétt um einum mánuði.
Ég hef ekki prófað módelið ítarlega, en ég hef á tilfinningunni að það sé orðið mun betra í að leysa almenn skrifstofuverkefni, eins og að búa til Excel skjöl eða glærur.
Þegar ný AI módel eru gefin út, eru yfirleitt birt skor á benchmark mælikvörðum, sem eru próf sem lögð eru fyrir gervigreindina í ákveðnum verkefnum. Þetta módel er að taka stórt stökk á flestum mælikvörðum, en sérstaklega á stórt stökk á GDPval sem er benchmark á ýmsum almennum skrifstofu verkefnum (Knowledge work tasks). Það fer úr 38.8% í 70.9%.
Með þessum pósti má sjá samanburð á niðurstöðum greininga GPT 5.1 og GPT 5.2, auk Claude 4.5 Opus við samanburð á ársreikningum þriggja stærstu verkfræðistofanna.
Að mínu mati hafa GPT-5.2 og Claude 4.5 Opus vinninginn - og þó að samanburðurinn hafi verið ítarlegri hjá GPT 5.2 þá tók það 17 mínútur að búa til excel skjalið á meðan Opus kláraði verkefnið á innan við mínútu auk þess að setja betur upp.


