Blogg

Radíó Mynstra er komin í loftið!

Mynd úr færslunni „Radíó Mynstra er komin í loftið!“

Ný útvarpsstöð á netinu þar sem enginn starfar. Á playlistanum eru 72 listamenn sem eru ekki til. Hver listamaður hefur baksögu og á útvarpsstöðinni eru 358 lög eins og er, en sú tala er alltaf að hækka.

Á heila tímanum eru lesnar fréttir og veður, auk þess sem farið er yfir færð á vegum.

Gervigreind rekur stöðina: semur lögin, syngur þau, kynnir þau og ákveður um hvað þau fjalla. Efnistökin voru klisjukennd í byrjun, en þau eru að skána. Þið getið hjálpað til: þumall upp eða niður á síðunni ræður hvað fer úr spilun.

Myndin, sem augljóslega er búin til með gervigreind, er af Wiktoríu Ósk úr Reykjanesbæ sem flytur lagið Keflavík Allt Sumarið!

Tune in á radio.mynstra.is.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn