
Þetta sagði Satya Nadella á dögunum og var að vísa til þess að AI agents muni leysa mikið af "Software as a Service" hugbúnaðarþjónustum af hólmi.
En AI er þegar byrjað að drepa SaaS! Einfaldlega með því að lækka þröskuldinn að því að geta búið slíkar lausnir til með gervigreind.
Á dögunum stofnaði ég ráðgjafarfyrirtækið Mynstru og er að klára fjórða vinnudaginn 😎. Ég var búinn að vera að leita að einföldu tímaskráningarappi, en ekkert sem ég fann small almennilega.
Svo ég ákvað bara að búa það til sjálfur! Settist niður um fjögur leytið á sunnudag, lét Claude skrifa lýsingu á appinu og tók hana með mér yfir í Cursor. Í millitíðinni setti ég chili con carne á eldavélina - og áður en maturinn var tilbúinn var ég kominn með tímaskráningarkerfið Mynstra Timesheets, sérsniðið að mínum þörfum - án þess að skrifa eina línu af kóða!
Appið býður upp á:
- Utanumhald um viðskiptavini
- Utanumhald um verkefni
- Einfalt og þægilegt tímaskráningarviðmót
- Mælaborð sem hjálpa mér að sjá hvernig Mynstru gengur
Svo er bara að bæta við reikningargerðarfítus fyrir mánaðarmótin! 🚀
