Blogg

Sameinaðu sveitarfélögin!

Mynd úr færslunni „Sameinaðu sveitarfélögin!“

Um helgina fékk ég Magnús til að útfæra gamla hugmynd. Diceland, einfaldan Risk-leik sem spilast á korti af sveitarfélögum á Íslandi.

Reglurnar eru einfaldar:
Þú byrjar með nokkur sveitarfélög. Hvert þeirra hefur ákveðinn fjölda teninga. Svo reynir þú að taka yfir aðliggjandi sveitarfélög með því að kasta teningum og fá hærri tölu en andstæðingurinn. Fyrir hvert samliggjandi sveitarfélag færðu svo einn tening í lok umferðarinnar sem dreifast af handahófi.

Það eru 62 sveitarfélög á Íslandi og mörk þeirra eru oft mjög undarleg

Leikurinn er furðu góð leið til að átta sig á því hvað sveitarfélögin eru mörg, hvað þau heita og hversu undarleg mörkin geta verið.

Ég mæli sérstaklega með að skoða Ásahrepp, Kópavogsbæ, Skagabyggð og Skagafjörð 🤯

Spilaðu Diceland hér.

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn