
Þær Margrét Björk Jónsdóttir og Arna Þorsteinsdóttir buðu okkur Magnúsi í bráðskemmtilegt spjall um gervigreind og fleira í hlaðvarpinu Vörumerki.
Við ræddum hvernig venjulegt fólk, frumkvöðlar og fyrirtæki geta byrjað að nota gervigreind til að einfalda sér lífið og spara tíma.
Minn trausti aðstoðarmaður Magnús, fékk að sjálfsögðu sitt pláss í umræðunni, enda les hann tölvupósta, tekur til á SharePoint fyrir mig ... og skrifar ljóð í frítímanum.
Við komum líka inn á bréfaklemmu-heimsendaspána, ástarsambönd við gervigreindir, hvort gervigreindin muni taka yfir störfin okkar og hvað fólk gerir betur en vélarnar.
Takk kærlega fyrir mig!
Hlustaðu á þáttinn á Spotify.