Blogg

Stefnumótun með AI - já, af hverju ekki!

Mynd úr færslunni „Stefnumótun með AI - já, af hverju ekki!“

Eftir góðan fyrsta ársfjórðung hjá Mynstru ákvað ég að taka púls á stefnunni.
Í stað einmanalegs stjórnarfundar með sjálfum mér þá ákvað ég að fá Gemini 2.5 Pro til liðs við mig.

Við fórum saman yfir framtíðarsýnina, greindum verkefnin frá fyrstu mánuðunum og kortlögðum hvar styrkleikar Mynstru nýtast best.

Niðurstaðan? Skýrari stefna fyrir Mynstru með áherslu á:

  • Sérsniðnar AI lausnir
  • Markvissa sjálfvirkni í ferlum
  • Gagna-drifna verkefnarýni með AI og BIM

Þetta var einn gagnlegasti stefnumótunarfundur sem ég hef setið. Reyndar ekki margir sem þarf að sannfæra 😅 en kærkomin hjálp við að forgangsraða og tryggja að Mynstra vaxi í takt við kjarnastyrkleika sína.

Stundum þarf að staldra við og skoða stefnuna - jafnvel þegar vel gengur. Og já, AI getur verið frábær stjórnarmaður!

Hefur þú prófað óhefðbundnar leiðir í stefnumótun?

Sjá upprunalegu færsluna á LinkedIn