
Á aðalfundi Félags ráðgjafarverkfræðinga í dag lét ég af stjórnarsetu minni eftir skemmtilegt og lærdómsríkt tímabil.
Ég gekk fyrst til liðs við FRV árið 2018 þegar ég tók sæti í stjórn Yngri ráðgjafa, og hef verið virkur þátttakandi síðan þá. Síðar tók ég sæti í stjórn FRV árið 2021.
Nú hef ég sagt skilið við félagið, þar sem fyrirtækið mitt, Mynstra, starfar á öðrum vettvangi og er nú aðili að Samtökum upplýsingatækni fyrirtækja (SUT).
Tíminn hjá FRV hefur verið dýrmætur. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast öflugu fagfólki - bæði hér heima og erlendis í samstarfi á borð við RINORD - og fyrir það að hafa fengið að leggja mitt af mörkum til að efla greinina.
Takk FRV og gangi ykkur allt í haginn!
Ps.
Myndskeiðið er úr heimsókn FRV á fund RINORD í Færeyjum síðasta sumar. Árni Jakobsen og færeysku gestgjafarnir slógu öll met í gestrisni og höfðu meðal annars undirbúið óvænta kórtónleika fyrir sendinefndina. 🇫🇴